Um bíóið

Laugarásbíó hóf starfsemi sína árið 1960 og í byrjun var aðeins einn sýningarsalur í kvikmyndahúsinu, sem tók 429 bíógesti. Árið 1985 var tveimur sýningarsölum bætt við, sem rúmuðu 200 manns í sæti.

Árið 2004 var Stóri salurinn endurbættur og var gömlu sætunum skipt út fyrir ný og þægilegri sæti. Við þessar breytingar fækkaði sætafjöldanum niður í 302 sæti. Nú eru salirnir þrír í kvikmyndahúsinu og taka þeir alls 502 bíógesti.

Aðstandendur Laugarásbíós hafa lagt mikinn metnað í að búa kvikmyndahúsið fullkomnustu tækni hverju sinni; hvort sem það snýr að mynd, hljóði eða öðrum búnaði sem við kemur sýningu kvikmynda. Kvikmyndahúsið er útbúið tveimur stafrænum sýningarvélum sem geta sýnt í stafrænni þrívídd.

Ætlar vinnustaðurinn eða saumaklúbburinn að fara hópferð í bíó? Hafðu samband: laugarasbio@laugarasbio.is


Síðan keyrir á íslensku kerfi sem höfundur síðunnar smíðaði sjálfur, og notast við PHP og MySQL.