Þrot

Þrot

Leikstjóri: Heimir Bjarnason
Handritshöfundur: Heimir Bjarnason
Helstu leikarar: Bára Lind Þórarinsdóttir, Anna Hafþórsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Pálmi Gestsson og Guðrún S. Gísladóttir
Tegund myndar: Spenna
Lengd: 93 mín.

Grunsamlegt andlát skekur smábæjarsamfélagið á Hvolsvelli og líf einmana sendilsins Rögnu er umturnað þegar hálfbróðir hennar, Júlíus, hverfur í kjölfar atviksins. Gömul sár spretta upp og verða að nýjum en þegar hin uppreisnargjarna Arna flækist í atburðarásina er ljóst að eitthvað ógnvægilegt kraumar undir yfirborðinu. Þá reynir á fjölskylduböndin, lífsgildin og tryggðina sem aldrei fyrr enda verður kaldur sannleikurinn þyrnum stráður, jafnvel lífshættulegur.