Leikstjóri: | Olivia Newman |
Handritshöfundur: | Delia Owens, Lucy Alibar |
Helstu leikarar: | Daisy Edgar-Jones, Taylor John Smith, Harris Dickinson |
Tegund myndar: | Spennutryllir |
Lengd: | 125 mín. |
Kya Clark, sem bæjarbúum í Barkley Cove þykir dularfull og óútreiknanleg, er yfirgefin ung af fjölskyldu sinni. Myndin segir frá uppvexti hennar á sjötta áratug tuttugustu aldarinnar í suðurríkjum Bandaríkjanna. Dag einn finnst maður myrtur sem Kya átti eitt sinn í ástarsambandi við og hún er nú grunuð um morðið.