| Leikstjóri: | Matt Johnson |
| Handritshöfundur: | Todd Bartels, Lou Howe, Matt Johnson |
| Helstu leikarar: | Dominic Sessa, Antonio Banderas, Emilia Jones |
| Tegund myndar: | Gaman |
| Lengd: | 106 mín. |
Hér er á ferðinni ævisögumynd með krydduðum snúningi sem gagnrýnendur og áhorfendur halda ekki vatni yfir! Sagan fjallar um Anthony ’Tony’ Bourdain þegar hann er 19 ára matreiðslumaður og ferðast til Provincetown í leit að reynslu og nýjum ævintýrum. Þar kynnist hann fljótlega óreiðukenndum heimi veitingahúsaeldhúss og kostulegu starfsfólki þess. Fljótlega verður honum ljóst að þetta er aðeins upphafið að örlagaríku sumri sem á eftir að móta líf hans.