Spaceballs: The New One

Spaceballs: The New One

Leikstjóri: Josh Greenbaum
Handritshöfundur: Josh Gad
Helstu leikarar: Bill Pullman,Lewis Pullman,Keke Palmer
Tegund myndar: Gaman
Lengd: 110 mín.
Frumsýnd 22. April 2027

Fjörutíu árum eftir atburði fyrstu Spaceballs-myndarinnar er vetrarbrautinni enn og aftur ógnað. Ógnin er svo illgjörn, svo óstöðvandi, svo gjörsamlega laus við allar frumlegar hugmyndir, að hún hefur svarið að endurvekja fortíðina ... hvern einasta bita af henni. Lone Starr er í felum, Vespa drottning situr í hásæti og Schwartz-ið er þynnra en kvikmyndasería sem gefur út sjónvarpsþætti í bíó. Eina von vetrarbrautarinnar er óagaður sonur Vespu, Starburst prins, og dularfullur ráðgjafi hallarinnar að nafni Destiny. Saman verða þau að finna Lone Starr, Yogurt og allar aðrar sígildar persónur sem aðdáendur heimta, áður en þau komast að þeim erfiða sannleika að þótt hægt sé að berjast gegn sumum ógnum, þá er endurræsingin ekki ein af þeim.