MaXXXine

MaXXXine

Leikstjóri: Ti West
Handritshöfundur: Ti West
Helstu leikarar: Mia Goth, Charley Rowan McCain, Giancarlo Esposito
Tegund myndar: Gaman
Lengd: 103 mín.

MaXXXine segir frá ævintýrum ungrar konu í kvikmyndaiðnaði Kaliforníu á níunda áratugnum. Hin harðákveðna en fjölhæfa Maxine Minx á sér stóra drauma um að slá í gegn í Hollywood. Hingað til hefur Maxine spreytt sig í klámiðnaðinum með góðum árangri en hún þráir frægð og frama auk þess að verða metin að verðleikum sem virt leikkona. Líf hennar breytist á svipstundu þegar henni er boðið að leika aðalhlutverkið í hryllingsmynd þar sem allt er lagt undir.

Þá þarf Maxine að sýna almennilega hvað í henni býr en leiðin að velgengninni gæti reynst henni um megn þar sem dularfullur fjöldamorðingi gengur laus og virðist herja á ungar leikkonur. Þetta er þó ekki fyrsta skiptið þar sem Maxine kemst í kynni við hrottalegan morðingja og eftir því sem spennan magnast bæði á tökustað og á götum borgarinnar þegar myrkur skellur á, er aðeins einn möguleiki í boði; að duga eða drepast.