Hvar er draumurinn?

Hvar er draumurinn?

Leikstjóri: Höskuldur Þór Jónsson
Handritshöfundur: Höskuldur Þór Jónsson
Helstu leikarar: Mikael Kaaber, Sigríður Ragnarsdóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason, Kolbeinn Sveinsson, Ingi Þór Þórhallsson, Hrafnhildur Ingadóttir, Molly Mitchell, Salka Sól Eyfeld
Tegund myndar: Söngvamynd
Lengd: 104 mín.

Hvar er draumurinn? gerist í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum og segir frá Bjarti, rótlausum ungum manni sem á lítið nema vinahóp sinn og skemmtistaðinn Sódóma. Þegar staðurinn stendur frammi fyrir lokun ákveða vinirnir að gera allt sem þeir geta til að bjarga honum. Á sama tíma bankar ástin upp á úr óvæntri átt þegar Bjartur kynnist Hófí, ungri stúlku sem lifir í allt öðrum veruleika.

Hvar er draumurinn? er söngvamynd byggð á lögum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns – tónlistardrifin saga um ást, vináttu, gleði og sorg.

Kaupa miða

4. September 5. September 6. September 7. September 8. September 9. September