Furiosa

Furiosa

Leikstjóri: George Miller
Handritshöfundur: George Miller
Helstu leikarar: Anya Taylor-Joy,Chris Hemsworth
Tegund myndar: Spenna
Lengd: 149 mín.
Frumsýnd 22. maí 2024

Heimurinn er á heljarþröm og hinni ungu Furiosu er rænt úr Green Place of Many Mothers og færð mótorhjólagenginu sem stríðsherrann Dementus fer fyrir. Á ferð sinni yfir einskismannslandið koma þau að borgvirki sem Immortan Joe stýrir. Hann og Dementus berjast um yfirráðin og Furiosa þarf að lifa af margar raunir á sama tíma og hún leitar að leið heim.