Berdreymi

Berdreymi

Leikstjóri: Guðmundur Arnar Guðmundsson
Handritshöfundur: Guðmundur Arnar Guðmundsson
Helstu leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Anita Briem, Blær Hinriksson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir, Birgir Dagur Bjarkason, Sunna Líf Arnarsdóttir, Snorri Rafn Frímannsson,
Tegund myndar: Drama
Lengd: 123 mín.
Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem alinn er upp af móður með skyggnigáfu. Einn daginn ákveður Addi að taka eineltisfórnarlamb undir sinn verndarvæng og inn í vinahóp slagsmálahunda. Án eftirlits, leika strákarnir sér að valdbeitingu og ofbeldi en kynnast einnig djúpri vináttu. Þegar hegðun strákana stigmagnast yfir í lífshættulega atburði, fer Addi að upplifa eigin skynjanir. Mun innsæi hans beina vinunum á öruggari braut eða munu strákarnir sökkva lengra inn í heim ofbeldis?
 

*Þessi kvikmynd er ekki ætluð börnum yngri en 14 ára.
*Myndin skartar senum sem innihalda ofbeldi og geta reynst viðkvæmum áhorfendum erfið áhorfs.