Dýrið

Dýrið

Leikstjóri: Valdimar Jóhannsson
Handritshöfundur: Valdimar Jóhannsson
Helstu leikarar: Noomi Rapace, Björn Hlynur Haraldsson, Hilmir Snær Guðnason
Tegund myndar: Drama
Lengd: 100 mín.
Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal og þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund en verður þeim síðar að tortímingu.